Umferðaröryggi við Vallarsel-framkvæmdir og breytingar á aðkomu að leikskólanum

Sæl öll.
Eins og einhver ykkar, jafnvel öll hafið tekið eftir þá eru framkvæmdir fyrir framan leikskólann. Það er verið að setja "eyju" fyrir framan leikskólann til að aðskilja götuna frá aðkomu að leikskólanum. Þetta er gert í þeim tilgangi að skapa umferðaröryggi í kringum skólann.
Einstefna verður að leikskólanum og meðfylgjandi mynd gefur vonandi betri sýn og útskýrir hvernig þetta muni líta út. (örvarnar sýna hvar innkeyrslan inn á stæðið verður)
Við biðjumst velvirðingar á því ef þetta veldur töfum eða ruglingi en vonandi þegar við erum orðin vön þessu þá muni þessi framkvæmd verða okkur öllum til heilla.