Ömmu- og afakaffi

Við ætlum að taka aftur upp árlegan viðburð sem féll því miður niður í Covid og bjóða ömmum og öfum að koma í heimsókn til okkar miðvikudaginn 24.apríl frá kl. 14.30. Þar ætlum við að bjóða öfum og ömmum í kaffi og kleinur og njóta samvista við barnabörnin sín. Þetta er skemmtilegur dagur og mikill spenningur sem fylgir. Þau börn sem ekki eiga afa og ömmu í nágrenninu geta boðið til sín frænku og frænda eða einhverjum sem þau eiga góð tengsl við.