ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Íris hefur verið að ræða mikið um að það sé hollt og gott að borða grænmeti.   Eitt barnið kemur stolt til Heiðu og Írisar og segir, ég á bugles heima hjá mér.   Þá segir Heiða, ég á saltstangir heima hjá mér.  Barnið sný sér að Írisi og segir hvað átt þú.  Íris segir að hún eigi bara ekkert heima hjá sér.  Þá segir barnið.  Íris átt þú ekki bara grænmeti. :) 

Prenta vefsíðu
2. september 2010 10:43

Nýjir starfsmenn.

Í gær byrjuðu hjá okkur þrír nýjir starfsmenn.  Anna Helga Guðmundsdóttir, Bergþóra Sveinsdóttir og Snjólaug Huld Grétarsdóttir.  Bergþóra verður á Lundi og Skarði ásamt því að skila milli kl. 16.30 og 17.00.  Anna Helga verður í afleysingu í húsinu fh. en á Völlum eh.  Snjólaug verður eingöngu í afleysingu.  Við bjóðum þær innilga velkomnar í Vallarsel og hlökkum til vetrarins með þeim.      

 

 

meira...
2. september 2010 10:39

Viðburðardagatal og matseðill fyrir september.

Nú er viðburðardagatal fyrir september komið upp á öllum deildum og eitthvað skemmtilegt í vændum alls staðar.  Einnig er matseðill fyrir september kominn á heimasíðu.  

meira...
19. ágúst 2010 12:37

Ný gjaldskrá

Við viljum vekja athygli á nýrri gjaldskrá leikskóla sem tekur gildi 1.sept. n.k.  Búið er að senda foreldrum tölvupóst með gjaldskránni í viðhengi.  Í framhaldinu verður hún svo aðgengileg á síðu Akraneskaupstaðar.  

meira...
6. ágúst 2010 12:56

Skipulagsdagur

Mánudaginn 23.ágúst n.k. er skipulagsdagur og þá er skólinn lokaður.  Dagurinn verður nýttur í fyrirlestur og undirbúningsvinnu fyrir starfsfólkið.    

meira...
6. ágúst 2010 12:33

Velkomin aftur.

Nú er fyrsta vikan að líða síðan við opnuðum aftur eftir sumarleyfi.  Börnin farin að koma inn og yndislegt að taka á móti þeim hressum og kátum eftir fríið.  Aðlögun yngstu barnanna er komin af stað og þau átta fyrstu byrjuð.  Alls verða aðlöguð 38 börn á tvær deildir í haust.  Ennþá er hluti af starfsfólkinu í fríi en nánast allir verða komnir í vinnu aftur þ. 16. ágúst.  Við erum bjartsýn og glöð  í Vallarseli og hlökkum til að vera með ykkur í vetur.    

 

 

meira...
29. júní 2010 03:12

Skemmdarverk

Börnum og starfsfólki brá í brún þegar þau mætti til vinnu í morgun. Búið var að brjóta kastalann okkar og færa úti kofann okkar af grunninum. Okkur þykir mjög sorglegt að sjá svona illa meðferð á lóðinni okkar og höfum biðlað til nágranna leikskólans um að hringja í 112 ef þeir verða varir við grunsamlegar mannaferðir við leikskólann. 

meira...
18. júní 2010 01:12

ÍA skrúðganga

Við fórum og horfðum á skrúðgönguna sem var vegna Norðurálsmóts í fótbolta sem verður hér á Akranesi núna um helgina. Nokkrar myndir af okkur eru inn í myndasafninu hér á forsíðu.

meira...
10. júní 2010 09:22

Skemmtileg furðufiskasýning.

Í gær fengum við að njóta þess þegar einn pabbinn í hópnum kom með safn af furðufiskum sem hann hafði safnað úti á sjó.  Það var mikill spenningur og margt að skoða og snerta hjá börnunum.  Þetta er skemmtilegt framtak sem við þökkum innilega fyrir.  

meira...
4. júní 2010 11:21
4. júní 2010 08:19
4. júní 2010 08:05
28. maí 2010 10:12
18. maí 2010 08:31
18. maí 2010 08:24
21. apríl 2010 04:05
21. apríl 2010 04:00
16. apríl 2010 04:50
16. apríl 2010 01:24
8. apríl 2010 10:20
30. mars 2010 11:50
29. mars 2010 12:01
23. mars 2010 03:07
19. mars 2010 11:53
 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is