ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
...syngjandi glöð í leik og starfi

Einn drengur á deildinni er með ofnæmi fyrir eggjum og hnetum.  Hin börnin eru mjög dugleg að passa uppá að hann fái ekkert sem hann má ekki borða.  Þegar það var slátur í matinn spurði einn drengurinn "Eru nokkuð egg eða hnetur í slátri." 

Prenta vefsíðu

Virkt foreldrafélag er mikil stoð og styrkur hverjum leikskóla.

 

Þegar barn byrjar í leikskólanum verða foreldrarnir sjálfkrafa félagar í foreldrafélaginu.  Félagið er fyrst og fremst stuðningsfélag við skólann og hefur látið margt gott af sér leiða og tekið þátt í mörgu sem kemur börnunum og skólanum til góða. 

Kosið er í (foreldraráð )á haustin og er æskilegt að í því séu tveir fulltrúar af hverri deild ásamt einum fulltrúa frá starfsfólki og leikskólastjóra.

Foreldraráð fundar með leikskólastjóra eftir þörfum.  Þar eru málefni leikskólans rædd, starfið framundan, ýmsar uppákomur og annað sem upp á borðið kemur.

 

Ferða- og skemmtisjóður: Þessi sjóður er alfarið í höndum foreldraráðsins.  Greiddar eru kr. 1500.- tvisvar á ári inn á bankareikning á nafni sjóðsins.  Reikningsnúmer ferða- og skemmtisjóðsins er:

 0186-26-1207 og kennitalan er 501100-3660

Foreldrar eru hvattir til að greiða gjaldið skilvíslega því þannig er tryggt að allir foreldrar leggi í þennan sameiginlega sjóð sem er eingöngu notaður fyrir börnin.

 

# Það er mjög mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir hvað sjóðurinn er að bjóða upp á:

-          Jólagjafir til barnanna, Jólasveinn, Jólaskemmtun, Vorhátíðin/grillhátíð, Lambaferð, útskriftarferð fyrir elstu börn deildarinnar og gjöf til leikskólans. Þetta er allt í þágu barnanna.

 

Hafi foreldrar einhverjar hugmyndir um hvernig starf félagsins geti verið eða eru tilbúin að aðstoða þegar þörf er á vinsamlegast hafið samband við fulltrúa í (foreldraráði).

 

 
Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | vallarsel@akranes.is